top of page
Þórshamar

Freyja Stígsdóttir er karatekona ársins

Stjórn Karatesambands Íslands hefur útnefnt eftirfarandi karatekonu og karatemann ársins 2019. Karatemaður ársins að þessu sinni er Aron Anh Ky Huynh úr ÍR. Karatekona ársins er engin önnur en okkar eigin Freyja Stígsdóttir.



Aron og Freyja á verðlaunaathöfn ÍSÍ fyrir íþróttafólk ársins.

Í rökstuðningi stjórnar KAÍ segir:


„Freyja hefur verið sigursæl karatekona síðusta ár í sínum aldursflokki. Hún keppir í kata og kumite og hefur náð frábærum árangri á árinu. Hún varð í öðru sæti á NM 2019 í sínum flokki auk þess að verða Bikarmeistari kvenna eftir að hafa sigrað á þremur Bikarmótum á árinu. Hún hefur verið í verðlaunasætum erlendis sem og innanlands síðstu ár. Hún er því verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar.“





Hér er listi yfir helstu afrek Freyju á árinu:

  • Norðurlandameistaramót 2019, Silfur í junior kvenna

  • Evrópumeistaramót Junior/U21, 15.sæti í junior kvenna

  • Smáþjóðamót 2019, Brons í junior kvenna

  • Smáþjóðamót 2019, Silfur í Team Senior

  • Gladsaxe Open, Gull í junior kvenna

  • Gladsaxe Open, Brons í senior kvenna

  • Gautaborg Open, Silfur í junior kvenna

  • Swedish Kata Trophy, Brons í junior kvenna

  • Ishoj Karate Cup, silfur í junior kvenna

  • RIG 2019, Gull í junior kvenna

  • RIG 2019, silfur í senior kvenna

  • Bikarmeistari kvenna 2019

  • Íslandsmeistari í hópkata kvenna

  • GrandPrixmeistari Kata 16-17 ára stúlkna

  • Íslandsmeistari Kata 16-17 ára stúlkna

  • Íslandsmeistari í Kumite stúlkna 16-17 ára

  • Íslandsmeistaramót, silfur í kata kvenna

  • Íslandsmeistaramót, brons í kumite -61 kg


Innilega til hamingju, Freyja – þú ert vel að þessu komin og við hlökkum til að fylgjast með afrekum þínum næstu árin.

47 views0 comments

Recent Posts

See All

Aðalfundur haldinn 4. mars kl. 20

Aðalfundur Þórshamars verður haldinn í húsnæði félagsins mánudaginn 4. mars 2024 kl. 20. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Stjórn...

Comments


bottom of page