Þórshamar
heldur úti spjallkerfi fyrir félaga í Þórshamri.
Smellið á tengilinn hér á eftir til að tengjast spjallinu:
Eins og allir alvöru spjallþræðir
hefur þessi FAQ-síðu (Frequently Asked
Questions) sem á að svara flestum spurningum
sem væntanlegir notendur kunna að hafa. Þar
er tekið á því fyrir hvern spjallið
er, hvernig á að haga sér, hvað má
og má ekki o.s.frv.
FAQ fyrir spjall Þórshamars:
Velkomin(n)
Velkomin(n) á spjallþráð Þórshamars.
Við biðjum þig að virða allar almennar
reglur um kurteisi á vefnum.
Notendum er frjálst að spjalla um allt milli
himins og jarðar svo lengi
sem það hæfir þeim efnisflokkum sem
á þræðinum eru.
Hver er Löggan?
Nokkrir fulltrúar stjórnar Karatefélagsins
Þórshamars eru stjórnendur
á síðunni og sjá til þess
að reglunum sé fylgt. Að öðru leyti
ríkir frjálsræði.
Hver er tilgangurinn með þessu?
Tilgangurinn með þessum þræði
er að félagar í Þórshamari
geti spjallað saman um
shotokan karate, æfingar, mót, æfingabúðir
o.s.frv.
Gestir með spurningar varðandi shotokan karate eru
velkomnir.
Hugmyndin er að hér verði til lifandi og
skemmtilegt samfélag fyrir áhugasama félaga.
Hver má vera með?
Allir geta lesið spjallið. En til að taka þátt
í spjallinu þartu að skrá þig
inn. Ef þú ert félagi í Þórshamri
eða hefur verið félagi þá geturðu
skráð þig. Usmjónarmenn fylgjast
ekki grannt með hverjir skrá sig inn. En þeir
fylgjast grannt með hegðun á spjallinu. Ef
þú ert ekki félagi en hefur eitthvað
til málanna að leggja er aldrei að vita nema
þeir leyfi þér að vera með.
Hefur einhver notandi meira vægi en aðrir?
Á vefnum eru allir jafnir. Skoðanir allra eiga
rétt á sér, hvort sem þið
eruð byrjendur eða lengra komnir. Við mælumst
til að fólk skrái sig inn undir réttu
nafni þó að hér séu það
skoðanir okkar og málflutningur sem tala sínu
máli, hver getur sparkað hæst eða hver
er hærra gráðaður er einfaldlega málinu
óviðkomandi.
Hvað má spjalla um?
Allt sem viðkemur karate og fellur undir efnisflokkana
sem eru í boði.
Hvað má ekki spjalla um?
Hmm. Að banna eða ekki banna.
1) Flame/troll og þannig umræðuefni
Umræðuefni eins og „hvað myndi karatemaður
gera á móti kung fu manni ef...?"
og þar fram eftir götunum eru ekki við hæfi
á þessum vef. Flestir iðkendur í
Þórshamri hafa raunhæfar hugmyndir um
hvað karate-iðkun þeirra færir þeim,
hverjum og einum. Enginn telur sig hafa höndlað
„hina einu sönnu bardagalist".
2) Persónulegar árásir og níð
Árásir á persónur eru ekki leyfðar.
Ef t.d. á að gagnrýna dómgæslu
er kannski hentugra að segja „Yfirdómarinn
virtist ekki vera tilbúinn til að fara eftir
ráðleggingum aðstoðardómara í
neinu tilfelli", frekar en „Dómarinn
var fífl."
Höldum okkur við málefni.
Hvað gerist ef ég brýt reglurnar?
Það fer eftir hversu alvarlegt brotið er.
Umsjónarmenn hafa algert vald til að eyða
umræðum, veita áminningu eða hreinlega
loka á notendur. Von okkar er að ekki komi til
þess að þurfi að grípa til aðgerða
gegn einstaka notendum.
Góða skemmtun!
|